Ferill 77. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1030 — 77. mál.
Nr. 22/145.
Þingsályktun
um að styrkja samstarf við Grænland og Færeyjar um sjávarútvegsmál.
Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að styrkja samstarf við landsstjórnir Færeyja og Grænlands um sjávarútvegsmál til að nýta til fulls þá sérstöðu sem Vestur-Norðurlönd hafa sem sjávarútvegssvæði. Ríkisstjórnir landanna kanni hvernig löndin geti aukið samstarf sitt á sviði sjávarútvegsmála og leggi niðurstöðurnar fram í sameiginlegri greiningu sem send verði til Vestnorræna ráðsins. Greiningin fjalli m.a. um:
a. samstarf á sviði sjávarútvegsmála,
b. samstarfsmöguleika á sviði fiskveiðistjórnunar,
c. möguleika á sameiginlegu vestnorrænu vörumerki og sameiginlegri markaðssetningu fiskafurða,
d. samstarfsmöguleika á sviði hafrannsókna,
e. stöðu umhverfismála og sjálfbærni,
f. kosti og galla aukins samstarfs um betri aðgang að mörkuðum, þar á meðal markaði Evrópusambandsins,
g. möguleika á sameiginlegri stefnu og samningagerð á sviði sjávarútvegsmála,
h. svið þar sem löndin þrjú standa sterkari saman en ein sér þegar kemur að sjávarútvegsmálum.
Samþykkt á Alþingi 16. mars 2016.